Fara á upphafssíðu                      
line
   
myndagallerí
|
albúm
|
verðskrá
|
panta tíma
|
ljósmyndari
 
ljósmyndari
  Jólakort   Jólamyndir og jólakort

Við erum með sérstakt tilboð á jólamyndum fyrir jólakort. Í nóvember og fram til 10. desember er 10% afsláttur á jólamyndatöku og innifalin eru 25 sérprentuð jólakort með umslagi. Einnig bjóðum við 10% afslátt af öðrum myndatökum fram til 10. des.

  Brúðkaupsmyndir   Brúðkaupsmyndir

Brúðkaupsdagurinn er STÓRI dagurinn. Tvö lítil hjörtu byrja að slá saman í takt og verða loks að einu stóru. Þetta stóra hjarta knýr ekki aðeins áfram tvo einstaklinga heldur líka þrjá, fjóra fimm, sex og jafnvel enn fleiri. Brúðkaupsmyndirnar segja sögu þessa merkisdags hvort sem það er aðeins að hluta eða frá morgni til kvölds. Undirbúningur, athöfn, brúðkaupsmyndatakan, veislan og svo er dansað fram á nótt. Meira hér:

  Barnamyndir   Barnamyndatökur

Þegar kemur að barnamyndum er það fyrsta sem ég spyr um er hvaða tími dagsins er heppilegastur fyrir barnið. Er það morgunhani? Er það hresst eftir hádegi, þegar það er búið að borða, eða er kannski betra að mynda það seinnipartinn? Að því loknu þurfum við að koma okkur niður á tíma sem hentar okkur hinum! Þá getum við verið nokkuð örugg með að barnamyndatakan heppnast eins og best verður á kosið. Meira hér:

  Fermingarmyndir   Fermingarmyndir

Fermingin er ekki langt undan og vinsælustu tímarnir eru óðum að fyllast. Hér eru ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi fermingarmyndatökuna. Meira hér:

  albúm, DVD ofl.   Albúm og frágangur

Frágangur ljósmynda skiptir mjög miklu máli. Það má búast við að albúmið endist í 100 ár og verði skoðað 100 sinnum af 100 manns, fjölskyldu, vinum og vandamönnum. Það er aðeins orðabókin og símaskráin sem eru skoðuð meira af öllum ritum heimilsins. Meira hér um albúm og bækur:

  Jon Pall Vilhelmsson  

Jón Páll Vilhelmsson ljósmyndari

Til að skoða sýnishorn af verkum þá er myndagallerí hér:

Jón Páll Vilhelmsson ljósmyndari hefur yfir 15 ára reynslu af ljósmyndum sem spannar ótrúlega vítt svið. Allt frá portrettmyndum til landslagsmynda. Frá auglýsingaljósmyndun til tískumynda fyrir tískukónginn Giorgio Armani. Meira hér:

   
  hafa samband sími: 848 9870
brúðkaupsmyndir
|
|
fermingarmyndir
|
landslagsmyndir
|
Vídeó